Um dag og veg i lifi Storks

miðvikudagur, október 1

Ótrúlegt hvað tækninni hefur fleygt fram. Sjá bara kallinn núna! Ég man það nefnilega eins og gerst hefði í gær þegar nýmjólk var bara mjólk og var í gulum tveggja lítra fernum, síðan fimmtudagar voru sjónvarpslausir skv. úrskurði ríkis og ég man það líka svo glöggt þegar Ási seldi mér Write ritvinnsluforrit með 386 tölvunni sem hann seldi mér líka. Ási gleymdi reyndar að segja mér að um svipað leyti og jafnvel nokkru áður þá kom á markað eitthvað sem nefndist Word for windows. Það var nú samt bara örugglega eitthvað djös drasl...

En þetta er bara nett. Þó hlýtur þetta tæknibrölt einhvern endi að taka. T.d. veit ekki hvað ég mundi gera ef ég frétti það að hægt væri að senda pappír í gegnum vél úr húsi A þannig að það komi óskaddað og ókrumpað upp úr vél í húsi B.

Nei, þá mundi ég segja, "nei, get right out of this town"

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home