Um dag og veg i lifi Storks

föstudagur, október 24

Að tala í kringum hlutina

Stundum forðumst við að tala um hlutina og tölum í kringum þá. Löstur finnst mér þegar það gerist. Það liggur í hlutnum að ræða hann hversu særandi eða opinskár hann getur hljómað í sannleiksgeisla. Loksins þegar hluturinn er svo ræddur komust við að niðurstöðu, okkur léttir og við veltum fyrir okkur af hverju við gerðum þetta ekki miklu fyrr. Hafið er aðskilið og málpípan á greiðan aðgang að næsta hlut. Og allt byrjar upp á nýtt.

Þetta er lífið kannski bara. Sama hringrásin aftur og aftur nema að við getum ráðið hversu hratt við viljum snúast.

Ef hluturinn snýst með verður hann þó rúnni á öllum hornum, hringlaga og þægilegri. Meðfærilegur og hvorki heggur í, né stingur. Gott að handfjatla hann.

Í lófa lagt þetta með hlutarins eðli.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home