Lyftu snakk
Oft lendir maður í lyftu með ókunnugu fólki en á maður þá eitthvað að vera að spjalla við það?
Nei kannski ekki en stundum þegar ég lendi í þessu langar mig til að segja eitthvað. Freistandi. Sérstaklega þegar ég heyri tugg, smjatt, humm eða flautustúf viðkomandi samferðamanns/konu.
En ok, get alveg samþykkt það að í einni lyftuferð er óþarfi að segja eithvað. En hvað ef lyftan stoppar? Er biluð? Hefur þá opnast leyfi til orðaskipta?
Ok, kannski ekki alveg strax en hvað þarf þá að líða langur tími þar til eðlilegt getur talist að segja eitthvað á þá leið... ,,Tja, nú erum við fokked up maður!” ?
Veit ekki. Snúið mál.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home