Verðurðu aldrei forvitinn?
Fékk þessa spurningu í gær. Hmmm... gæti það verið?! Veit ekki. Ég er kannski ekki nógu forvitinn. Gæti svo sem alveg viðurkennt það (með semingi þó). Ég finn allavega ekki alltaf fyrir þörf fyrir að vita allt um alla og ef einhver hváir við eða færist undan með að segja mér frá einhverju ákveðnu efni þá er það bara í góðu lagi mín vegna. Viðkomandi segir mér frá því þegar hann er tilbúinn...
en.
Manninum er eðlilegt að vera forvitinn. Hlýtur að vera því ef svo væri ekki þá væri "framfarir" framandi orð í orðabókum. Svo er ekki. Þó eru auðvitað til þjóðir sem ekki hafa tekið miklum framförum í gegnum tugi og jafnvel hundruði ára en það á ekki við okkur Íslendinga.
en.
Í mínu tilviki gæti þetta því verið svo að dönsku genin mín séu að mixa systeminu öllu upp. Gæti það verið? Gæti verið að "ligeglad" genin mín séu í hrópandi þversögn og átökum við hið íslenska þvermóðsku forvitni element. Veit ekki.
en.
Svo gæti þetta líka bara verið út af því að mahur alltaf veja svo treyyttur!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home