Um dag og veg i lifi Storks

mánudagur, október 27

Vitlaus röð

Þegar ég fer að versla, í Bónus eða slíkar búðir lendi ég alltaf í því sama. Ég vel vitlausa röð. Alltaf! Hvernig er það hægt!?

Þegar ég er búinn að fylla körfuna byrja ég að fikra mig nær búðarkössunum með hnút í maganum. Ég mæni í laumi á raðirnar og reyni að sjá út hvaða röð muni verða hraðskreiðust. Við þessar mæningar horfi ég til þriggja þátta. Lengd raðanna, aldurs fólks í röð og magn vara í körfunum. Vel svo röðina og stend vongóður bara til þess að sjá röðina við hliðina taka fram úr mér.

Reikna þetta alltaf aðeins skakkt.

En það er kannski bara allt í lagi. Fór í Bónus um daginn og valdi góða röð. Röðin varð auðvitað seinvirkari en hinar en sá í staðinn nokkuð skrítið. Maðurinn á undan mér í röðinni var með fulla körfu af Bónus brauði. Ekkert annað! Kalt mat þá voru svona 20 stórir brauðhleifar í körfunni. Gaurinn bað um magnafslátt (eða var það hópafsláttur? Man ekki). Stelpan á kassanum góndi og kímdi. Ég líka.

Kannski á maður bara að slaka á og vera ekki að stressa sig. Láta frekar kylfuna ráða kastinu og hætta að mæna á aumingja fólkið. Þá gefst líka meiri tími til að taka eftir öllu hinu skrítna fólkinu.

Það er kannski rétta röðin.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home