Um dag og veg i lifi Storks

föstudagur, október 3

Góð gjöf

Fengum um daginn sendan fótbolta hingað á stofuna frá fyrirtækinu Þeim tveim sem gerir auglýsingar, myndbönd og stuttmyndir. Vildu með þessu móti auglýsa firmamót auglýsingastofa. Frábært framtak. Leik ég mér nú um gangana með knöttinn blýfastan við tána þegar ég fer fram að ná í kaffi, næ í blað úr prentaranum eða skýst yfir næstu herbergi. Alltaf með boltann á tánum. Blýfastan.

Held að Maradona hafi fengið bolta að gjöf líka þegar hann var mjög ungur en hann hefur ekki hætt að leika sér þegar fór að rökkva og mamma kallaði á hann mat. Nei hann hefur líklega rekið boltann áfram malarveginn heim, í gegnum hliðið, fintað sig framhjá sauðfénu í garðinum, vippað yfir hænurnar og svo haldið boltanum á lofti upp tröppurnar, haldið honum á höfðinu á meðan hann opnaði hurðina, rekið hann því næst inn ganginn, inn í stofu, æft hælspyrnur þar á meðan hann vakti pabba sinn sem hafði lagt sig í sófanum, tekið boltann því næst á milli lappana nokkrum sinnum á leiðinni inn á baðherbergi, þvegið sér um hendurnar og því næst sest við matarborðið og spilað fóta ping pong við mömmu sína á meðan fjölskyldan borðaði.

Þannig verða menn góðir!

Kannski er því ekki vonin úti enn fyrir Storkinn þó svo full seint sé nú í stélið gripið...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home