Um dag og veg i lifi Storks

þriðjudagur, október 28

Skólabróðir minn úr Verzló dó á sunnudaginn. Hann hafði glímt við erfið veikindi lengi. Við vorum ekki félagar eða vinir í þeim skilningi og jafnvel ekki einu sinni hægt að segja að við höfum verið góðir kunningjar. Aðeins bræður úr skóla.

Góður drengur samt sem kenndi manni sitthvað um æðruleysi. Hitti hann við og við á förnum vegi og hann sýndi mér ávallt betri lund sína. Kvartaði ekki, heldur sagði mér frá fyrirætlunum sínum. Var að hugsa ýmislegt. Var með plan. Þrátt fyrir planið vissi hann þó, eins og við öll, að hans tími yrði styttur af örlagadísunum og styttri en flestra annarra á okkar reki.

Þrátt fyrir að við værum ekki vinir þá lærði ég af honum þetta um æðruleysið eins og maður lærir af góðum vini sínum.

Hvíldu í friði vinur.


0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home