Um dag og veg i lifi Storks

fimmtudagur, október 30

Bíllinn minn

Er ekki mikill bílakall. Reyndar er ég búinn að fatta það ég er víst mjög lítill bílakall. Eiginlega er ég enginn bílakall.

Var í rútu á leið heim frá Akureyri í sumar og fór allt í einu að huxa um bílinn minn og um það hvort bíllinn minn væri tveggja eða fjögurra dyra. Velti þessu fyrir mér í smá stund en hló svo með sjálfum mér yfir vitleysunni í mér. Auðvitað var hann fjögurra dyra! Renndum nokkru seinna inn á Esso stöðina upp á Höfða, bíllinn beið tryggur eftir mér í einu stæðanna. Tveggja dyra.

Fór með bílinn á verkstæði um daginn, þarf að stilla eitthvað dót. Maðurinn á stæðinu sagði að þetta væri líklega kertið, að það þyrfti að skipta um allt kertasafnið. Rooosa... Ég spurði hvort hann héldi sem sagt að það myndi ekki nægja að skipta um bara eitt kerti. ... Smá þögn. Leit á mig. ,,Maður skiptir ekkert bara um eitt kerti” var svarið. Óóókei dók! Hvað eru kerti líka að þvælast undir húddinu á bílnum mínum!?

Setti bílinn minn sem sagt í allsherjarkertaígræðslu og maðurinn skráði bílinn í aðgerðina. Spurði mig hvað númerið væri á bílnum. ,,Uhmmm O... E... 3... 87! (Þótti góður) Rétt svar: OE 273. (eða er það 382?)

Annars er blái bíllinn minn bara mjög fínn sko.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home