Ríkis
Lífið getur verið einfalt, lífið getur verið flókið.
13 tegundir af súpum, 500 hárklippistofur, 7 svipaðar sjónvarpsstöðvar, breytilegt veður, nokkrir tuga kaffihúsa (selja öll svart kaffi), 11 ráðherrar, 5 (viðurkennd) álegg á pulsur í brauði, karla og kvennalandslið, 5 skilningavit, trilljón Megabæt, 50 bragðgóð Rauðvín í Ríkinu (6 tegundir ekki góðar), Síminn og og Vodafone, 4 álíka fallegir litir í regnboganum, 4 bíósalir í Regnboganum, 1,329 ólík mannanöfn. Strumpatogari og uppstrumpari.
Í sannri Útópíu er lífið ekki flókið; þar er bara eitt af öllu. Einfalt, öruggt og vellyktandi. Fólk virðist reyndar stundum þurfa að hafa ólíkar skoðanir á mismunandi hlutum en við hljótum allavega að geta sannmælst um að hafa ólíka skoðun á sama hlutnum, já eða sömu skoðun á ólíkum hlutum.
Í ,,Tópíu,, er þetta ekkert vandamál því að þar ríkir bara einn vilji, einn áhugi, ein hugsun, ein skoðun.
Sko, allir happy.
Það er nefnilega svona ríkis...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home