Ætlaði ég í alvörunni að berja Ragga?
Gilli vinur minn er búinn að halda því fram í mörg ár, eða síðan við vorum 16 ára að ég hafi þá sagt við hann að ég væri að spá í að berja Ragga, strák sem var með okkur í bekk. Af hverju ég átti að hafa viljað gera þetta veit ég ekki. Raggi var svona þessi týpa sem var alltaf eitthvað að nuðast og böggast. Hló hátt og potaði, sagði fátt en æpti meira. Ok, þessi lýsing er nú kannski ekki alveg 100% rétt enda man ég svo sem lítið eftir því hvernig strákur Raggi var.
En allavega, Gilli (Gjælfmasterinn) heldur því statt og stöðugt fram að ég hafi sagt þetta, að mér langaði til að berja Ragga! Auðvitað varð ekkert úr því enda hef ég aldrei barið neinn á minni ævi. Danglaði reyndar í Sverri í Breiðholtinu þegar við vorum svona 10 ára og tæklaði einu sinni einn línuvörð í 3. deildinni í fótbolta. En thats it held ég.
Rekst samt stundum á Ragga þar sem hann er á labbi, stússi eða nuði með konu sinni og barni. Held að hann muni nú ekkert eftir mér enda vorum við bara saman í bekk í eitt ár og síðan hætti Raggi í skólanum. Alltaf þegar ég hitti á hann rifjast þó þessi orð Gilla upp fyrir mér og ég huxa, ætlaði ég virkilega að lemja þennan gaur? Why!?
Þetta sest allavega í kollinn á mér í hvert sinn sem ég rekst á hann og því er ég að spá í að stoppa hann næst þegar ég hitti hann og spyrja hann hvort hann viti af hverju ég hafi ætlað að berja hann. Já eða ég bara berji hann og ljúki þessu af. Skilji hann eftir með blóðnasir á gólfinu í Kringlunni og konan stumrandi yfir honum öskrandi á mig hvaða djös sækó ég sé. Eða neeee kannski bara ekki.
En hey, kannski ég berji bara Gilla fyrir að vera alltaf að muna eftir þessu!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home