Litlar ákvarðanir og stórar
Á stundum erfitt með að ákveða mig. Að taka ákvörðun. Það getur stundum verið mér nánast ofviða og þá skiptir ekki öllu hvort um litlar fáskiptar ákvarðanir er að ræða eða stærri og áhrifagjarnari.
Eitt sinn stóð ég í 1 og hálfan tíma fyrir framan lítinn stand með bindum áður en ég gat ákveðið mig hvaða bindi mér langaði helst í. Var 16 ára í Hollandi að kaupa mér bindi í fyrsta skipti. Gunni og Maggi biðu samviskusamir eftir mér þrátt fyrir 30 stiga hitann. Líklega verið loftkæling í búðinni. Endaði á því að kaupa mér vínrautt bindi með myndum af bátabaujum á.
Ég er ekki frá því að litlar ákvarðanir geti verið sýnu erfiðari, flóknari, lúmskari og oft eru þær sýnilegri. Litlar ákvarðanir geta líka verið persónulegri en þær stærri og þá skipta þær meira máli.
Stundum held ég að lítil ákvörðun sé stærri en stór ákvörðun.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home