Karamellu hreinskilni
Helgin. Púff!
Fór á opnun sýningar Siggu frænku í Hafnarborg á laugardaginn. Missti af fyrri hálfleik af leiknum en það var ok. Fín sýning annars. Svo um kvöldið var það 50tugs afmæli hjá Gunna manni Siggu/opnunarpartý í nýja húsinu sem þau eru að byggja í Áslandinu. Hiti kominn í húsið og vindþétt en annars bara grá steinsteypan sem umlukti tónlist, Sushi og gamlar handboltahetjur úr Haukunum. Mjög nett. Steig meira að segja á stokk ásamt Nonna frænda og flutti tjaaa leikrit má segja. Meira ruglið.
Fékk svo ógrynni af koníaki og þar kem ég loks að fyrirsögninni hér að ofan...
Held ég hafi orðið sæmilega kenndur við Konna þetta kvöld. Fór heim á L55 en þá var partíið þar búið og liðið farið í bæinn. Gafst því gott tækifæri fyrir gott einsmennings partí þar sem aðeins var spilað Pixies og Oasis. Leiddist þó fljótt að vera DJ fyrir DJ eingöngu og kíkti á Ölstofuna. Hitt þar mann og annan og það er akkúrat núna sem ég kem loks að fyrirsögninni!
Hitti Gunna, leikstjóra Karamellumyndarinnar sem hlaut Edduna á föstudaginn fyrir bestu stuttmyndina. Hann spurði mig hvernig mér fannst myndin og þegar það komu smá vöfflur á mig þá sagði hann, ,,hey, kommon vertu hreinskilinn mar” Ég gerði það s.s. Sagði að ég hefði ekki verið aaalveg sáttur. Fannst vanta aðeins upp á söguþráðinn og eitthvað meira. Sagði honum líka að þetta hefði verið fínt sem 1. þáttur af 10 í barnamyndaflokki! Held hann hafi ekki verið mjög sáttur eða haft mikinn nenning í sér að tala við mig. Skil það vel. Ég var alveg fulli erfiði gaurinn þarna. Ikk godt. Myndin er ekki svona slæm, alls ekki. Var reyndar alveg ágæt. Fannst bara eins og það hefði verið hægt að gera þetta aðeins öðruvísi en ég hef svo sem ekki vit á þessu. “Lookaði” samt flott myndin. En Gunni, ef þú ert að lesa.. hmm. Já sko sorry, gerist líklega ekki aftur!
Kúrði svo sæll og góður um nóttina, átti frekar erfiðan sunnudag og er frekar steiktur ennþá núna á mánudegi verð ég að viðurkenna.
Held ég fari á leikhús eða eitthvað um næstu helgi

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home