Flautað afturábak
Var að labba Laugaveginn um daginn. Sunnudagsmorgunn. Nokkrir bílar voru að silast eftir götunni. Sá fremsti fór sér engu óðslega, lullaði áfram og bílstjórinn og frú hans í farþegasætinu litu vel og lengi inn um alla búðargluggana.
Tveimur bílum aftar leiddist bílstjóra þófið, fannst heldur seint ganga. Hann flautaði því flautu sinni til þess að reka á eftir þeim fremsta.
Þeim fremsta brá heldur við flautið og brást við með því að flauta sinni flautu á móti... til baka!
Því datt mér í hug hvort þetta mætti. Það er vel viðurkennt að maður geti flautað til að reka áfram einhvern sem er fyrir. En er hægt að flauta á einhvern sem er fyrir aftan þig að reka á eftir þér? S.s. að flauta afturábak!? Ekki viss um að það sé tekið með.
Veit ekki.
Sá allavega tvo menn þarna tjá sig með aðra hönd á stýri. Dýrindis flauturifrildi í beinni, í stillunni á sunnudagsmorgni. Gaman að því.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home