Hvað verður um suma hluti?
Allt sem var og hefur orðið er liðið.
Sumt fer bara og kemur aldrei aftur. Sumt hverfur óvænt og á undarlegan hátt, annað hverfur að því að við veljum að láta það hverfa.
En hvert fara þessir hlutir eiginlega?
Þegar við t.d. skrifum á Write forritin okkar í tölvunni eða tölvupóst og verður á. Ruglumst og skrifum nokkra vitlausta stafi; jafnvel orð eða heilar setningar. Hvað verður þá um alla þessa stafi? Ætlar einhver að segja mér að þeir fæðist bara og deyji án þess að skilja nokkur spor á eftir sér!? Nei, hélt ekki.
Spúkí samt.
Margsinnis á dag hugsum við sniðuga hluti, hugmyndir og orð. Við smíðum þetta saman í huganum, opnum munninn og hljóðum setningar. Orð.
Fallin orð.
Yfirleitt fara þau inn um tvö eyru og inn í annan hugarheim. Skilaboð mótttekin. Smíðuð saman. Önnur fallin orð fara þó bara eitthvað beint út í loftið. Enginn var að hlusta.
En hvert fara þau þá?
Veit ekki. Ef ég vissi það myndi ég safna öllum þessum orðum saman, fara í allsherjar smíðavinnu og búa mér til lengstu setningu í öllum heiminum. Kannski gefa hana út.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home