EM´ 04
Í gær birti DV heila opnu í svörtu þar sem stóð eitthvað á þá leið... Hér átti að fjalla um árangur íslenska landsliðsins á EM í handbolta. Ástæðan var EM þátttaka Íslendinga. Ástæða svörtu opnunnar, slakur árangur.
Veit ekki.
Kommon! Er það ekk full mikið í árinni gripið, of fast á pedalann stigið?
Strákarnir vissulega lélegir og slakari en hin liðin en að stöðva skoðanaskiptin er enn meira tap í mínum huga. Fáranlegt að slaufa bara þessum dögum og eyða prentsvertu í staðinn?!
Hvað ef Shaekspeare í loftfimleikum hefði ekki gengið vel í London, aðalleikararnir hefðu allir runnið á rassinn, gleymt línunni sinni eða dottið í það? Svartar síður, núll umfjöllun?
Eða ef Halldór Ásgrímsson mundi tala illa og bjagað á fundi utanríkisráðherra í Evrópu, gleyma línunni og gleyma að horfa upp frá blaðinu? Svartar síður, núll umfjöllun?
Held ekki.
Verum hress á því og spörslum aðeins í sárin, þeirra og þjóðarinnar og byggjum upp á nýtt. Að segja ekki neitt er uppgjöf fyrir framhaldinu. Með því að vera svona Sviss neutral er verið að berjast fyrir tilgangsleysinu og lítill tilgangurinn í því.
Las áðan á mbl.is um næstu leiki á mótinu: ,,Þó svo að þátttöku íslenska landsliðsins í handknattleik sé lokið á Evrópumótinu í handknattleik heldur mótið áfram ...,, Nohh, bara meiri bolti eftir! (blaðamaður með semingspenna, hundfúll og með slóvenska timburmenn).
Lífið heldur áfram þrátt fyrir lélegan varnarleik á stundum; það er handbolti eftir lífið.
Líklega er samt besta umfjöllunin á www.handbolti.blogspot.com . Umfjöllun sama hvað. Svo eru Danirnir líka ennþá með ; - )

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home