Ákvarðanir – erfiðar og óerfiðar
Sumar ákvarðanir eru erfiðari en aðrar. Þær geta verið þess - legar að maður reynir að forðast það að taka þær eins og lengi og mögulega er hægt; jafnvel í lang, lang-lengstu lög. Maður hleypir þeim á flótta og sjálfum sér í leiðinni. Fljótt gerir maður sér þó grein fyrir því að sumar ákvarðanir verður að nálgast með skynsemi og yfirvegun úti á vellinum og tilfinninguna í 2 mínútna brottvísun á meðan.
Þessar ákvarðanir eru erfiðar af ýmsum ástæðum. Verið getur að þær skipti mann sjálfan miklu máli, ráði hreinlega öllu um hag manns og tækifæri. Framtíðina og nútíð. Aðrar skipta mann miklu máli en aðra enn meira. Svo eru þær ákvarðanir til sem maður vill í raun ekkert taka en það er eitthvað sem segir manni að hún verði að taka flugið og forðast flóttann. Að verða tekin og borin upp.
Þetta eitthvað er oft einhver innri rödd, reynsla eða tilfinning sem maður býr yfir og getur ekki útskýrt nánar.
Veit ekki.
Þó svo maður sé stundum algjörlega sannfærður um að eitthvað sé fyrir bestu – líður manni stundum eins og það sé manni sjálfum fyrir verstu.
Tilfinningin komin úr 2 mínútna brottvísun á ný.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home