Um dag og veg i lifi Storks

þriðjudagur, janúar 20

eitthvað um sitthvað

Finnst mér alltaf eitthvað um sitthvað? Ekki viss.

En á ég að gera það? Þ.e. á manni endilega að finnast alltaf eitthvað um sitthvað og jafnvel eitthvað um alla hluti?

Ef eitthvað verður á vegi mínum, hefur bein áhrif á göngu mína hittir það mig og krefur svara. Ég neyðist til að mynda mér skoðun. Það er líka ágætt því ef ég geri það ekki þá leggst ég flatur fyrir öðrum sporum og/eða skeyti lítið um runnana í mínum eigin garði. Lítið gaman að slíku skeytingarleysi.

En ef eitthvað gerist í göngu einhvers annars, í einhverri allt annarri götu í allt annarri borg í allt öðru landi og ég var alls ekki á staðnum? Á mér þá samt að finnast eitthvað um hlutina? Kannski. Veit ekki. E.t.v., ef ég skeyti ekki um þá nú, gæti það hugsanlega komið í bakið á mér seinna. Birst skyndilega í eigin bakgarði með hrópum, köllum og framandi sveðjum (Betra að vera viðbúinn þá).

Og þó... Held að þó að ég reyndi og vildi, gæti ég aldrei haft skoðun á öllum hlutum. Til þess þyrfti ég að brúka ansi mikinn tíma til að koma mér inn í hina ýmsu og ólíku hluti og það gæti tínt til flestar stundir dagsins og skilið eftir lítið pláss fyrir önnur verkefni.

Finnst mér alltaf eitthvað um sitthvað? Já, ekki spurning.
Finnst mér alltaf eitthvað um allt? Neibb. Ég vildi en hef ekki tíma.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home