Crystal, Auxerre og annar bolti
Á mér eitt lið í uppáhaldi í Englandi (fyrir utan Liverpool auðvitað en þeir eru svo slakir að það pirrar mig meira en gleður að tala um þá) sem heitir Crystal Palace. Lið sem hefur þrátt fyrir nafnið ekki unnið til margra bikara, krystals eða gulls en nafnið ætti að gefa góð fyrirheit.
Toppuðu í kringum ´94 ca þegar þeir urðu í 3. sæti í efstu deild og fóru í úrslit í bikarnum þar sem þeir töpuðu fyrir Man. Utd í tvíleiknum úrslitaleik, 1-0 í síðari eftir 3-3 jafntefli í þeim fyrri. Gríðarlega skemmtilegt lið þar á ferðinni með dúóið Ian Wright og Mark Bright fremsta í flokki í framlínunni og John Salako á kantinum að mata þá.
Nú berast svo stór tíðindi og fögur fyrirheit því að á áætlun er að Haukar spili við Crystal Palace (varaliðið) á Selhurst Park í Lundúnum einhvern tímann eftir páska. Þetta er líklega ennþá bara á teikniborðinu en ef af yrði, jaaa mikið asskoti yrði það skemmtilegt!
Hér hægra megin er flipi þar sem smellast má inn á heimasíðu Crystal ef einhverjir vilja skoða nánar og kynnast liðinu með fáu bikarana en kúl nafnið.
Crystal vann um helgina, 1 – 5 Watford á útivelli.
Svo er það franski boltinn en þar er enn mikil spenna. Hér eru úrslit og staða einsog þetta leit út fyrir viku síðan. Monaco enn á toppnum en athygli vekur hversu Auxerre er að rétta úr kútnum. Guingamp strögglar sem fyrr.
Jan 9, 2004 Monaco - Lyon 3 - 0
Jan 10, 2004 Ajaccio - Le_Mans 2 - 0
Auxerre - Marseille 2 - 0
Guingamp - Strasbourg 3 - 2
Lens - Nantes 0 - 0
Metz- Bastia 1 - 0
Montpellier - Bordeaux 1 - 2
PSG - Lille 1 - 0
Sochaux - Nice 0 - 0
Toulouse - Rennes 2 - 0
Jan 10, 2004 Total
1. Monaco 19 14 3 2 35 - 14 45
2. PSG 20 11 5 4 26 - 16 38
3. Lyon 19 10 5 4 32 - 17 35
-------------------------------------------------------
4. Auxerre 20 11 2 7 32 - 18 35
-------------------------------------------------------
5. Sochaux 19 10 5 4 29 - 18 35
6. Marseille 18 10 0 8 24 - 19 30
7. Nice 19 7 9 3 18 - 15 30
8. Bordeaux 19 8 5 6 20 - 17 29
9. Lens 20 9 2 9 16 - 28 29
10. Nantes 20 8 4 8 19 - 18 28
11. Strasbourg 20 7 5 8 32 - 30 26
12. Rennes 20 5 8 7 20 - 21 23
13. Bastia 20 6 5 9 23 - 31 23
14. Lille 20 5 7 8 21 - 25 22
15. Ajaccio 20 6 4 10 19 - 26 22
16. Montpellier 18 6 3 9 26 - 30 21
17. Metz 19 5 4 10 15 - 21 19
-------------------------------------------------------
18. Guingamp 20 5 3 12 19 - 32 18
19. Le_Mans 20 3 7 10 17 - 32 16
20. Toulouse 20 3 6 11 15 - 30 15

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home