Um dag og veg i lifi Storks

miðvikudagur, janúar 21

Bólgur í álaginu

Á við meiðsli að stríða. Ekkert alvarlegt en haltra þó lítillega við mikið álag eins og að hlaupa. Hvimleitt þegar maður á að vera að elta bolta. Fór til sjúkraþjálfara til að athuga með þetta og það kom í ljós að nokkrar álagsbólgur hafa myndast vinstra megin á knénu mínu og að öllum líkindum vegna þess að ég æfði lítið fyrir áramót og byrjaði svo skyndilega og of geist eftir áramót.

Sem sagt... álagsbólgur vegna lítils álags í rauninni. Undarlegt. Þetta þýðir að því meira álag sem ég hefði lagt á sjálfan mig (fyrir áramót) því færri álagsbólgur. Segir sig kannski sjálft. Veit ekki.

Snúið

Ef ég ætla að sleppa í framtíðinni við svona álagsmeiðsli eru mér því tvær leiðir ljósar. Annað hvort að hætta aldrei í fótbolta og að hlaupa og vesenast eitthvað eða þá að hætta og byrja aldrei aftur. Tssss... erfið ákvörðun.

Alveg stóóórhættulegt að slappa af.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home