Helgin fram – undan
Hef lítið að segja á svona gráum föstudegi en kannski öllu heldur of lítinn tíma til að finna eitthvað að segja og segja það vel. Fer því beinu og grönnu leiðina og segi þér frá fyrirætlunum helgarinnar.
Það er klipping hjá Rock-me-Amadeus á Laugaveginum núna í hádeginu. Svo er það vinna aftur og landsleikur 17.30. Ungverjalandið. Þurfum líklega toppleik til að vinna Gúllash strákana. Toppum í dag. Síðan er það líklega matur (maður þarf að fæða sig) og svo gæti það heitið Súfistinn í koffí, bíóblað og krot í stílabókina. Ein video eða annað tjill svo seinna um kvöldið og einn stíll í rifuna ef svefninn á erfitt með að komast fyrir í rúminu. Nei segi svona bara.
Á morgun ætla ég dobbla kærustuna með að kíkja í byen og í búðir. Sjá hvort ég finni eitthvað fyrir gjafakortið sem ég á. Ávísun á góða gjöf. Gæti freistast til að kíkja á Súffann og er að spá í að horfa á fyrsta heila leikinn í sjónvarpinu síðan í september. Liv – New í bikarnum (Crystal dottið út).
Afmæli og landsleikur á sunnudaginn, krota í tölvuna og huxa um lífsins gagn og ónauðsynjar – sjálfum mér og öðrum fyrir bestu.
Gagnleysi í hámarki á sunnudegi. Vonandi að það komi eitthvað gott út úr því.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home