Um dag og veg i lifi Storks

miðvikudagur, janúar 28

Fagmaður eða ekki fagmaður?

Sumir eru fagmenn og aðrir ekki (og þá er ég ekki að tala um muninn á iðnaðarmanni og ófaglærðum slíkum nota bene), aðrir eru algjörir fagmenn og sumir bara alls ekki.. Stundum getur verið erfitt að meta og greina fagmennina frá hinum og aðferðin er í rauninni eitthvað sem hver og einn verður að finna með sjálfum sér.

Fagmenn eru ekki endilega mestu töffararnir eða klárasta fólkið, gáfaðasta eða besta. Þeir geta alveg verið allir þessir hlutir en það er ekki skilyrði. Frekar að það sé leiðbeining.

Nei, í mínum huga er fagmaður oftar einhver sem er sérstakur á einhvern hátt og ýmist er það, þrátt fyrir allt sem er venjulegt í kringum hann eða er sérstakur og gerir sér ekki grein fyrir því. Hvernig sem á það er litið eru fagmenn allir góðir og gegnir. Ólík laglína en tónninn samt alltaf góður.

Held að sé samt best að útskýra fagmenn með fagmennskudæmum um fagmenn...

Yfirmóttökustjórinn í Regnboganum er fagmaður.

Gamall maður sem ég sé stundum á röltinu í bænum, alltaf í jakkafötum og leðurhönskum, með sítt grátt hár tekið saman í tagl á nokkrum stöðum; minnir helst á japanskana samuræja, er fagmaður.

Reynir Pétur er fagmaður

Danny DeVito er fagmaður

Carlos Valderama er fagmaður

Hermanna-Óli er fagmaður

James Coburn er fagmaður

Fjölnir alltaf-í-hlýrabol-sama-hvernig-veður, er fagmaður

Addi rokk er fagmaður

Hebbi Gumm er fagmaður

Geir Ólafs er fagmaður

Joe Pesci er fagmaður

Páll gef-tólið Arason er fagmaður

George Best er fagmaður

Raggi Bjarna er fagmaður

Tom Waits er fagmaður

Prófessor Vandráður

Skapti og Skafti

Ito Kata

Craig Johnstone

Sammy Lee

Miles Davis

Michael Madsen

Lee Marvin

Christoper Walken

Og svo hugsanlega mesti fagmaðurinn af þeim öllum, Hitoshi!
- http://www.generation.nl/~hitoshi/

ofleiriofleiri


Samt er Ómar Freyr - Bangsi líklega mesti fagmaðurinn - aaalgjör fagmaður.

Þekkir þú fagmann?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home