13,5 merkur, 49,5 cm
Fæddur og kominn á ról. Það hlaut svo sem að koma að því. 5. mars heyrðist vængjatak yfir Hofteignum og Lansanum og lítill snáði kom reifaður til mömmu sinnar. Sonur mömmu sinnar enda lítið líkur mér. Á nú samt eitthvað í honum.
2 vikur liðnar og snáðanum virðist líka vistin nokkuð vel. Þó helst til í að gleypa umheiminn yfir blánóttina en augnlokin þyngst yfir daginn. Frekur á mjólkina og foreldrana líka. Líður best með mjólkurskegg í hálsakoti. Heilsast vel eins og mömmunni hetjunni.
Pabbinn líka kominn á smá ról : - )

6 Comments:
Til hamingju með prinsinn! Hvernig væri svo að senda manni nokkrar myndir af honum á tölvupósti??? Kv. Rut
11:13 f.h.
Takk Rut!
Já þú meinar svona dígítal megabæt?! Er að vinna í tæknihliðinni minni og sendi vonandi á morgun! ;-
12:01 e.h.
No prob! Tækninni fleeeygir fram núna. Sendi í dag.
9:59 f.h.
Djö eru sumir nettir í dígitalinu mar... bara copy-paste & send ! ! !
Danke, þú átt skylið mörg upplæri fyrir þetta...
11:42 f.h.
Nóbb, njaaa held ekki. Er það?!
Get ekki staðið í svona barnalandssíðu - það er alltof flókið og patent eitthvað.
En skal senda út pakka reglulega frekar! Vúhúúú.
ps. Væri líka soldið patent ef ég gæti sett inn myndir á þessa síðu!
2:37 e.h.
hehe... sitthvað kannski til í því Stjáni!
3:06 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home