Samdráttur í storkaspjalli
Stukkum af stað um miðja nótt.
Stungið tilviljanakennt ofan í tösku og velt fyrir sér hvort skonsurnar ættu að fá að fljóta með. Skonsurnar! Reyndi að finna viðeigandi föt til að taka á móti – í, sem er kannski óviðeigandi. Sagði díses og setti bara eitthvað skringilegt. Borgin svaf og virtist algjörlega laus við að vera upprifin með okkur. Svaf fast fyrir utan nokkra hrafna sem hringsóluðu á vakt. Vingjarnlegt viðmót í storkahreiðrinu, tékkað og talað og svo send út í nóttina á ný. Sjáumst kannski í fyrramálið aftur var kveðjan. Sofnaði án þess að muna eftir því. Vaknaði víst líka án þess að muna eftir því. Allt að gerast þó nýjustu fréttir herma að svo sé reyndar ekki. Í bráð. Samdráttur í þessum fréttum eins og öðru. Generalt samt góð prufa og allt er pakkað og klárt.
Nema skonsurnar auðvitað.

1 Comments:
Hey. Þetta er bara að fara að skella á!! Nema þetta sé þegar á skollið þar sem ekkert hefur heyrzt frá þér núna í 2 daga... hólí ká! Ætli storkurinn sé kominn með lítinn unga?
Ef ekki, mundu þá bara að þetta er eitt af fáum tækifærum sem þú færð til að brjóta umferðarlög löglega! Þokkalega sem mar nýtti tækifærið aðfaranótt 28 maí, 2001 og brunaði eins og brjálæðingur með bumbubúa eftir bústaðarveginum um blánótt á bláum benz! (well, not actually, en Renault er byrjar ekki á Béi, þótt hann hafi nú reyndar verið blár...)
Enívei, gangi ykkur vel og hlakka til að heyra fréttirnar).
- Kárinn í Englandinu
8:35 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home