Um dag og veg i lifi Storks

þriðjudagur, febrúar 15

Ivan Drago?

Á ársþingi KSÍ um helgina var Haukum veitt svonefnd Drago stytta fyrir að hafa verið prúðasta lið fyrstu deildar síðasta sumar. Þetta þykja mér nú góðar fréttir.

Heldur ekki laust við það að mér finnist ég nú eiga smá í þessari styttu, ef ekki bara dágóðan hlut. Hef enda reynt eftir fremsta megni að vera prúður leikmaður innanvallar og dagfarsprúður þess – fyrir utan. Þannig hef ég reynt að leika frekar í lóðréttri stöðu frekar en láréttri og ávallt rétti ég upp hendi og viðurkenndi brot mitt skömmustulega við hvert flaut. Svo prútt hefur reyndar stundum verið leikið að sumum hefur orðið um. Og ó.

En loks er sjentilmannaleikurinn að skila sér og vonandi að slíkur meginlandsknattspyrnuháttur fái framvegis aukna viðurkenningu. Vill ég við þetta tækifæri tileinka Drago styttuna öðrum dagfarsprúðum leikmönnum eins og Morten Olsen, Alan Hansen, Sókrates, Vali Valssyni, Glen Hysen, Viðari Þorkelssyni, Gareth Soutgate, Pele, Jesper Olsen, Peter Davenport, Mark Bright, Craig Johnstone, Elís Fannari Hafsteinssyni, Bobby Charlton, Michael Laudrup, Arnari Grétarssyni og Paul Mariner.

Allir eru þeir Rocky Balboa knattspyrnunnar. Slíkir flaggberar sjentilmennskunnar eru algjört möst.

Break you.

11 Comments:

Blogger BJ said...

Þátt nú ekki skilið einhver svona verðlaun eftir FÓLSKULEGT brot á Leðurdverginum hér í fyrra, er hann Klobbaði Storkin svo 'eftirminnilega' ! ! !

3:59 e.h.

 
Blogger Darri said...

Iss, eitt brot á nokkurra ára fresti er nú ekki neitt!

Annars eiga leðurdvergar ekkert að vera að klobba storka.

4:50 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Það er hægt að klobba Storka með meters háum boltum...nánast blindandi...múhahaha

Kúrbíturinn

2:45 f.h.

 
Blogger Darri said...

Nákvæmlega! Þannig að það er því ekkert að marka þótt einhver klobbi mig - það getur gerst hvar sem er á vellinum. Allan tímann!

11:05 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

íhíhíhihihíhíh´hh

11:39 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

þetta var eftirminnilegur klobbi.Held að ég hafi farið sjálfur í gegnum klofið á storknum eftir klobbann..hehehe

12:48 e.h.

 
Blogger Darri said...

Klobbi slobbi! Algjörlega ofmetnir svona klobbar.. iss!

Annars hefðir þú leðurdvergur nú átt að fá gult spjald fyrir að voga þér að klobba svona dagfarsprúðan leikmann!

Illa gert maður... uss uss uss.

12:55 e.h.

 
Blogger BJ said...

Face it Darri klobbi - þú ert fauti ! ! ! !

Annars djö sáttur við að Leddi sé kominn aftur til Hauka til að sveifla þeirri vinstri...

Hlakka til að grípa einn leðraðann & kaldann með 'onum á morgun...

2:11 e.h.

 
Blogger Darri said...

Iss.

Enda - um leið og Leddarinn kom aftur ákvað ég að best væri að hætta.

4:27 e.h.

 
Blogger BJ said...

núhh?? Erfitt að fá gult spjald gegn manni sem er með þér í liði ! !! ! !

Va bene ?

9:37 f.h.

 
Blogger Darri said...

Laus við leðurklobba maður!

10:58 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home