Lagt af stað
Hef ekki tíma til að tjá mig. Og þó að það væri verra ef ég hefði tíma en segði samt ekkert, er hætt við því að það sem maður loksins skrifar verði voðalega mikið sjálfhverft og innávið einhvern veginn. Jafnvel líka óskiljanlegt fyrir lesanda minn og stórvin Bjergvehn.
Eins og t.d. þetta hér. Hafði ekki tíma og byrjaði því bara að tikka og slá. Er kominn hingað. Veit ekki hvert ég á að fara næst. Á sem stystum tíma. Hugsanlega best þegar svo er að leggja ekkert af stað yfirhöfuð. Já kannski. Lagði samt í hann og of seint að snúa við. Þarf að finna leið út aftur.
Hmmm...
Hvítu slopparnir sögðu okkur að ég yrði fjölskyldumaður í þessari viku. Missti eitt andartak eitt augnablik við fréttirnar því ég hélt ég hefði 2 vikur í viðbót. ”Það var búið að segja mér það.” Jöfnuðum okkur þó strax og settum okkur í stellingar. Töldum þó réttast að borða úti – svona þessa síðustu kvöldmáltíð. Fórum út að borða og í bíó. Síðasti sjens. Eða svo héldum við. False alarm. Sem er alveg í lagi mín vegna. Átti nefnilega eftir að setja upp ljós á 2 veggi.
Eins og ég viti nú hvernig eigi að gera það.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home