Akkúrat
Útlit selur oft bílfarma og stundum Innlitið líka. Datt inn í Innlit – Útlit á skjánum í gær, eiginlega í fyrsta skipti ever. Svona að einhverju ráði allavega. Vala hress en með undarlegan og ólíkan her af aðstoðarfólki með sér. Ein með hreim.
Sá alhvíta rúmmetra af húsi í miðbænum, groovy veggfóður í Breiðholtinu og baðaðstöðu tveggja karlmanna í Fossvoginum. Eða einhvers staðar. Skemmtilegt.
En flest er til sölu og allur aðstoðarherinn og undirmenn þeirra eru á skjánum því þeir þurfa þess - lögmálin ota þeim í kastara sviðsljóssins. Verða að vera með, taka þátt, vera hressir! Þannig var fyndið að sjá fullorðinn hæglátan smið frá Handlaginn spá í tískuspilin með skvísunum sem flissandi kölluðu hann algjöran snilling. Sá að honum leið eins og konu á karlasalerni. Stór hugsunarblaðra sagði mér að honum langaði frekar að vera í veiðitúr eða í golfi. En maður verður að vera með, vera hress. Ef maður ætlar að selja.
En til að selja verður maður fyrst að kaupa. Innlitið. Hápunkturinn var þegar Vala var búinn segja mjög jákvæða hluti í smástund og endaði á orðunum Akkúrat; “Já einmitt, akkúrat... akkúrat. ... Og úr því að ég er nú að segja akkúrat þá má nú geta þess að þú ert frá fasteignasölunni Akkúrat er það ekki? – Jú Vala akkúrat. Við hjá ...“ Einmitt. Nei ég meina akkúrat!
Heppin með nafn samt. Hefði hljómað undarlega ef Fold hefði borgað brúsann. “Já uhumm, Fold ... Fold”. Segi svona.
Hef nú samt lúmskt gaman af Innlitinu og Völu sem er klár. Grunar að hyggindi búi undir hlátrinum tæra. Hún kann allavega að selja góðan þátt. Sátum í það minnsta límd í gær skötuhjúin; vantar enda veggfóður og það er víst líka svo groovy núna. Og hver vill ekki vera hress og groovy (“in the summertime” :) ?
Ekki ekki ég!

2 Comments:
Funky and groovie mar mar.....
Bara ekki vera jafn lengi að ákveða þig með veggfóðrið eins og svarta jakka atarna.... Þú verður orðin 3 barna faðir áður en þú kaupir veggfóðrið ef þú gjörir það....
Íhíhíhíhíhi´h´h.... "á jeg að kaupa jakkann ??, ha ha strákar, ha humm á jeg "
Darri jakkakall....
10:44 f.h.
Flottur jakki - du du du - flottur jakki - du du du! ;-
11:21 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home