Um dag og veg i lifi Storks

föstudagur, janúar 21

Bóndi

Bóndadagur í dag. Bóndi bóndi. Húsbóndi?

Guðni bóndi hlýtur að fá góða bóndagjöf í tilefni dagsins. Kannski tímavél svo hann geti farið til baka og hugsað betur hvað hann á að segja varðandi Íraksmálið. Kannski sleppt pylsunni í leiðinni. Til baka.

Ætli maður verði kannski að vera bóndalegur til að gjöf? Útitekinn með eplakinnar og vindblásið hárið? Neee líklega ekki. Einn sem ég vinn með fékk allavega bóndagjöf. Súkkulaðiköku og hann er ekkert sérstaklega bóndalegur. Meira svona fölur götulegur borgarstrákur.

Veit ekki hvað ég fæ. Kannski sms frá Happdrættinu. Nefnilega til í að vinna fyrir 900 krónur á mánuði. Held samt að konan ráði ekki við lukkuörlögin.

Tjahh. Og þó.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home