Um dag og veg i lifi Storks

laugardagur, október 8

Dagbók á laugardegi - Á Laugavegi

Fórum niður í bæ feðgarnir. Lögðum upp við Iðnskólann og röltum niður Frakkastíginn framhjá kunnuglegum slóðum á Njálsgötunni. Alveg niður að Laugavegi. Hittum Lóu spóu þar á horninu - stóð í flutningum. Unicef að flytja í verslunargötuna.

Gengum áfram og hittum fljótlega gamlan mann sem ég hef fylgst með úr fjarlægð lengi. Þetta er maðurinn með síða gráa hárið og hárteygjurnar. Maðurinn í svörtu jakkafötunum og leðurhönskunum. Ég hef minnst á hann við einhverja veit ég. Sá gamli stóð fyrir utan Bernhoft bakarí alveg stífur og starði út götuna. Hef séð hann svona standandi, starandi áður. Ég gekk með vagninn hægt framhjá honum og leit á hann - hann horfði á mig til baka og augu okkar mættust nokkur augnablik. Annað auga hans er ljósblátt. Ég gekk framhjá og sá að hann fylgdi okkur eftir. Hélt áfram að horfa á mig en sagði ekki neitt. Mér fannst það að ég skyldi hitta hann vera táknrænt. Um hvað, er ég ekki viss en táknrænt fyrir eitthvað.

Gekk áfram og heyrði Who the fuck is Alice lagið í botni - og hljóðið hækkaði. Bjóst við að sjá 17 ára stráka á fyrsta rúnti með glott á vör. Nei. Fullorðinn maður með konu og tvo lítil börn í barnastólum aftur í - með rúðuna alveg niðri og þetta ömurlega lag í botni. Skildi ekki í konunni. Skildi minna í honum. Gekk niður að Bæjarins bestu og hitti Alice fólkið aftur. Karlinn sendi konuna að sækja pylsur á meðan hann fletti geisladiskasafninu inni í bílnum. Kannski að leita að nýju lagi til að setja í botn áður en hann keyrði aftur niður Laugaveginn. Ég vonaði ekki. Fann til með pylsukonunni.

Heyrði í Adda. Hann var bíllaus heima að fara að horfa á England-Austurríki. Kvartaði undan því að eiga tvo ísskápa - ég skildi hann vel. Sagðist svo ætla að sýna mér bráðum eitthvað sem mér mundi finnast geðveikt. Hlakka til þess.

Hringdi í Ingu og hún hitti okkur við Tjörnina. Röltum á Café Paris og settumst þar niður. Ég fékk mér kakó en hún te - sem hún svo reyndar drakk aldrei því hún tímdi ekki að leggja Lúkas frá sér. Tók svo nokkrar myndir af honum. Sjarmatröllið. Sagði Ingu frá bókinni og hún varð spennt fyrir því. Kíkti á Bensinn hennar og við feðgarnir kvöddum svo.

Röltum heim og hér erum við. Fínn dagur í dag bara.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home