
Dagbók á laugardegi - Vaknaður
Jæja, þá er hann vaknaður.
Kátur að vanda enda útsofinn. Svaf í tvo tíma og mig grunar að ég hafi ruglað aðeins rútínuna. Átti líklega að sofna fyrr, vakna fyrr. En hvað um það.
Stóðum fyrir framan spegilinn á baðinu sem kætti hann að vanda. Rak upp roknahlátur. Kannski ekki roknahlátur - en flissaði mikið.
Spurði hann hvort honum langaði niður í bæ. Hann er til í það svo við ætlum að halda af stað.
Um leið og búið er að þvo appelsínugula gulrótarmaukið úr andlitinu.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home