Dagbók á laugardegi
Jæja, þá eru það bara við tveir. Strákarnir.
Mamman farin út úr bænum í heilan dag, kemur aftur í kvöld. Heill dagur framundan og bara við tveir. Strákarnir.
Það er nýtt. Í svona langan tíma. Fyrir mig, fyrir mömmuna - og fyrir Lúkas með pabba sínum - án mömmu sinnar. Svona lengi.
Núna lúrir hann úti í vagni eftir brölt morgunsins. Reyndi að trufla morgunlestur pabba síns með því að borða Fréttablaðið. Ágætt blað en kannski ekki alveg svona gott. Ég gaf honum stoðmjólk í staðinn.
Kaffið í pabba-bollanum varð líka stundum kalt - náði aðeins að súpa við og við. Þurfti að leika líka, ekki bara lesa. Ekki nema sjálfsagt. Fer líka illa með augun.
Stappaði svo banana, setti hann í vagninn og rúllaði nokkrar ferðir eftir gangstéttinni hérna fyrir utan. Þar til augnlokin urðu þyngri en forvitnin.
Lúrir núna, ég hér.
Held við kíkjum í bæinn á eftir. Hringi kannski í Adda, langt síðan ég hef hitt hann.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home