Um dag og veg i lifi Storks

sunnudagur, október 2

Heimsborgin Reykjavík?

Römbuðum, í leit að list, inn á umræðustjórnmál í listrænni útfærslu. Höfðum ætlað að þefa uppi myndlist - eða bara list, í Hafnarhúsinu en fundum út að listin að rabba, rýna og ræða var list dagsins.

Efniviðurinn og innblásturinn í senn, var Vatnsmýrin og R-listinn spurði okkur (og ykkur) hvað okkur finndist rétt að gera. Ágætt framtak svo sem og þannig séð en spurningin samt svolítið skrítin. Ótímabær helst. Vekur allavega upp spurningar.

Mér var boðið að tússa inn á kort mína hugmynd en átti enga - og litla sem enga teiknihæfileika heldur. Sem ég vildi flíka á svona stað. En í bílnum á leiðinni heim spurði ég loks sjálfan mig um Vatsmýrina. Hvað finnst mér? Og datt þetta í hug...

Heimsborgin

Nýtt íbúðahverfi í takti við verslanir, kaffihús og annað sem heyrir undir miðbæjar afþreyingu og þjónustu. Stuðlað að lífi og fjöri - ekki byggja aðeins íbúðahverfi sem verður svefnhverfi á besta stað í bænum. Úthverfi í miðborginni.

Svæðinu skipt í nokkur smærri svæði. Hvert svæði hefði í uppbyggingu og stíl sitt þema tengt menningu, anda og byggingahefð ólíkra landa. Þá gæti hvert svæði jafnvel í grunninn verið byggt eftir útliti fánar viðkomandi lands. Segi svona.

Dæmi:

Japanska hverfið: Japanskur stíll og húsaþyrpingin byggð í kringum "rauða torgið" (rauði depillinn í japanska fánanum)

Norðurlöndin: Byggingastíll sem minnir á Scandinavíulöndin auk annarra þekktra einkenna. Tvær megin (göngu)götur sem mynda kross í gegnum hverfið (krossarnir í fánunum)

Brasilía: Mikið af grænu svæði með hringlaga alþjóðlegri menningarmiðstöð í því miðju (blái hnötturinn í fána)

Osfrv.

Segi svona. Kannski too much?

Heimsborgin - Reykjavík!

Segi svona.




0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home