Um dag og veg i lifi Storks

sunnudagur, september 4

Sirkus

Sirkusfólkið skreið fram í dagsljósið á óvenju kristilegum tíma nokkru fyrir rökkur í dag. Það var kominn eldur í Sirkustjaldið. Þétt utan við gula Do Not Cross rúllubandið stóð það listaspírulega eða gekk lopafullum skrefum fram og til baka. Stakk exístensilískum nefum saman og skiptist á áhyggjufullum orðum um Tjaldið sitt. Ég gekk hjá og ýtti úthverfislega barnavagninum á undan mér.

Brosti í kampinn, alltaf gaman í Sirkus.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Pfff.... Teigarnir eru ekkert alvöru úthverfi ... bara fjörðurinn ;)

11:27 f.h.

 
Blogger Darri said...

Úthverfi hugans kannski : )

3:19 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home