Um dag og veg i lifi Storks

sunnudagur, september 4

Bræður Guðna

Sá rétt lítillega af Kóngur um stund í kvöld. Þar var fylgst með Guðna Ágústssyni og bræðrum hans ríða.


Hætt´að telja þetta er ég - stóð í laginu og það gerði ég líka. Hætti að telja. Maðurinn á bræður! Er ekki með fjölda þeirra á hreinu en horfði á þá stíga hvern á fætur öðrum fram í sviðsljósið og ég gapti bara og sagði einn í viðbót? aftur og aftur og aftur. Ansi sérstakir fírar sýndist mér– og bakland Guðna varð aðeins skýrara. Áttaði mig betur á því af hverju Guðni er eins og hann er.

Það varð líka ljóst af hverju Guðni er á þingi. Það er nóg að bræðurnir kjósi hann og hann er strax kominn með dágott forskot.

Segi svona.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home