Friðrik frændi giftir sig
Friðrik frændi minn er að fara að gifta sig. Fann stelpu í Ástralíu sem hann varð skotinn í. Reyndi við hana á einhverjum bar, bauð henni út að borða. Þau skemmtu sér bæði vel, hittumst nokkrum sinnum eftir það og héldu miklu sambandi eftir að hann fór tilbaka í höllina í Danmörku. Símareikningarnir... vóóó! Á endanum tókust ástir með þeim og stelpan flutti til Danmerkur. Hún kynntist foreldrum Frikka og fjölskyldu, lærði að borða með þremur göfflum, vinka að drottningarsið, keyra um í hestakerru og brosa við skóflustungu nýrrar sundlaugar. Í rigningu. Frikka leist vel á hvernig hún náði tökum á þessu öllu og á fundi einum í myrkvuðu herbergi með nokkrum lykilmönnum var ákvörðun tekin. This was it!
Frikki fór því til forsætisráðherrans og spurði hvort hann mætti giftast stelpunni. Forsætisráðherrann tók ágætlega í þessu bón en sagðist nú reyndar þurfa að bera þetta undir alla hina vini sína á Þinginu. Frikki fór því heim til sín, klæddi sig í Hummel gallann, setti Shu-bi-dua á fóninn og nagaði neglur. Var eilítið órótt. Daginn eftir bárust honum góðar fréttir. Á annað hundrað stjórnmálamenn höfðu kosið um ráðagerðina og svarið var já! Frikki skundaði með fréttirnar á fund með sinni heitt elskuðu og sagði henni fréttirnar. Hún hafði þegar heyrt þetta, las það á extrabladet.dk.
Nú er svo brúðkaup ráðgert þann 14. maí á næsta ári.
Nema stjórnin falli auðvitað og kosið verði til þings skyndilega en það er óþarfa svartsýni.
Ætla því að fjárfesta í smóking. Tek sjensinn.
Rómantík.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home