Um dag og veg i lifi Storks

miðvikudagur, október 8

Kaffileysi, strípur og Korpúlfsstaðir

Í dag er stór dagur hér hjá okkur á stofunni. Its moving day! Erum að flytja niður í Sóltún, í stóran turn þar og deilum þar húsnæði með ABX auglýsingastofu. Ekki þó Fílabeinsturn.

Allt er hér í kössum, dyngjum, rusli en það versta er að það er kaffilaust! Ekki tekur að kaupa meira kaffi svona síðasta daginn enda er kaffivélin gamla líka biluð. Held ég lifi þetta nú samt af og maginn prísar sig líklega sælan. Kvartar stundum sáran.

Fæ þó líklega einn bolla eða tvo í kvöld. Við Gunni og Bjöggi ætlum að sækja óðalsbóndann að Korpúlfsstöðum heim í kvöld til að fara yfir og sækja um vistarverur í Köbenhöfn næsta haust. Hyggjum allir eða hluti af okkur á útrás til að nema eitthvað meira. Sjáum til. Allavega fínt að heimsækja herra og frú Ace.

Sá annars forseta Intercoiffure á Íslandi (sem eru e-h tískusamtök hárgreiðslufólks) í viðtali í Íslandi í dag... í gærkvöld. Hann var með gular strípur. Sýndi bara hvað hann var tískumeðvitaður. Strípurnar voru í tísku fyrir kannski 5-8 árum síðan og því líklega ekki nema um 5 ár þar til þær slá í gegn á ný. Trendsetter greinilega og maður á undan sínum samferðamönnum í tískunni. Enda forseti.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home