Á nýjum stað
Sit á nýjum stað. Búinn að plögga tölvunni minni en ekki búinn að taka upp úr kössum ennþá. Líst ágætlega á staðinn. Útsýnið er yfir á japanska sendiráðið, Videohöllina, gamla Ármannsvöllinn og þá sé ég rétt glitta í fljóðljósin á Laugardalsvelli.
Er búinn að taka út kaffið á staðnum og það er ljómandi gott.
Held þó að ég hafi heyrt lágt kvein djúpt í iðrum magans einhvers staðar.
Allt í góðu sem sagt en á samt eftir að hreiðra aðeins betur um mig.
Þarf kannski á næstunni að safna meira af spreki, mosa og greinum til að klára það verkefni alveg. Þetta skiptir allt máli.
Los Storkos

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home