Um dag og veg i lifi Storks

fimmtudagur, október 9

Kennaratyggjó

Þessar gráu plötur sem við þekkjum öll. Ómissandi á hvert heimili. Allavega heimili eins og okkar á L55 þar sem allt veggskraut er plakatakennt og innrömmuð málverk á trélistum er enn sem komið er, aðeins á óskalistum.

Ég held og vill fullyrða að ein plata af kennaratyggjói dugi fyrir alla, í öllum tilfellum, alltaf. Það er sama hversu mikið þú kroppar af, það er alltaf hægt að kroppa bara aaaaðeins meira og svo koll af kolli. Feykilegt undraefni.

Engin furða að kennarar eru almennt lífseigir einstaklingar. Að tyggja sömu tugguna daginn út og daginn inn krefst sterkra góma.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home