Um dag og veg i lifi Storks

mánudagur, nóvember 10

Þegar manni líður illa.. ?

Velti fyrir mér.

Þegar manni líður illa, ber maður þá áhyggjur sínar á klæðunum? Vita aðrir af því þegar manni líður illa?

Veit maður sjálfur af því?

Sumir brosa þó hjartað hökti aðeins af gömlum vana. Aðrir kíma sjaldan né fá blik í auga, en líður samt vel. Hafa bara ekki orð á því.

Stundum held ég að manni geti liðið illa án þess að vita það sjálfur. Þá er eins gott að aðrir taki eftir því. Segi manni frá því.

Flókið.

Engar áhyggjur samt... mér líður vel. Eða hvað segir þú?

Úff, mánudagur...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home