Um dag og veg i lifi Storks

föstudagur, nóvember 7

Súmó - Sturtubíllinn

Er með soft spot fyrir Súmó glímu. Veit ekki hvað það er en mér finnst Súmó glíma vera frábært sport. Stórar fitubollur í belti einu fata sem líkist (reyndar) helst bleyju, reyna að bumba hvern annan út úr litlum moldarhring. Og sigra þar með.

Áður en bardaginn hefst dreifa kapparnir lukkuhrísgrjónum yfir hringinn og reyna svo að taka andstæðinginn á sálfræðinni með því að gera sig líklegan til að leggja hnúana í jörðina, sem þýðir að bardaginn er hafinn, aðeins til að hætta við á síðustu stundum og dreifa aðeins meira af lukkuhrísgrjónum.

Bardaginn hefst svo að lokum en er lokið á nokkrum sekúndum. Enda ekki mikið pláss fyrir tvo hnetti í þessu litla sólkerfi sem hringurinn er. Spennan magnast stigvaxandi en fær svo skyndilega útrás sem endist bara í örfáar sekúndur. Minnir einna helst á ... já einmitt.

Man þegar Stöð 2 sýndi vikulega þætti af Súmó glímumótum. Mörg ár síðan þetta var en ég man að ég reyndi að missa aldrei af þætti. Átti uppáhalds fitubollu sem hét Konishiki og var reyndar frá Hawaii. Var langstærstur og feitastur og ekki mjög fimur í hringnum. Náði þó oft að bumba andstæðinginn. Á þessum tíma var hann ekki meistarinn, það var annar gaur, öllu grennri og vöðvameiri sem var kóngurinn þá. Man ekki hvað hann hét. Konishiki átti þó eftir að verða meistari, kóngur og keisari glímunnar. Er núna stórstjarna í Japan þó hann sé hættur að súmast.

Man að Konishiki var með viðurnefni sem var þýtt á Stöð 2 - ,,Sturtubíllinn”. Veit ennþá ekki hvað Sturtubíll er en fagmaður var Konishiki.

Góður bíll svona Sturtubíll.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home