Um dag og veg i lifi Storks

mánudagur, nóvember 3

Helgin

Ágæt helgi. Fór í koníaksboð til Adda á Rauðará á föstudagskvöldið. Francoix Voyager, 8. ættliður í koníaksframleiðandi fjölskyldu mætti þar og leiddi okkur í gegnum öll trikksin í smökkun og gerð koníaks. Mjög nett. Smökkuðum 5 tegundir sem voru betri stig frá stigi. Síðustu tvær tegundirnar sérstaklega góðar. XO og Extra. Lék um tunguna eins og súkkulaðivindur. Menn hummuðu, svolgruðu, tístu og smjöttuðu í smökkuninni. Gáfu frá sér skrýtin búkhljóð og reyndu að færa orð á bragðið (fyrir bragðið). Darker taste, lighter smell, less aroma, woody feeling og fleiri skemmtilegar lýsingar heyrðust út undan humminu. Fagmenn á einu kvöldi.

Stjáni vakti mig svo í hádeginu á laugardeginum, sagði að það væri kominn tími til að standa á fætur því ég væri að fara á Gospel tónleika. Ok sagði ég, leist vel á það. Fékk tvo miða og bauð Adda með. Frábærir tónleikar fyrir fullu Háskólabíói. Snilldar hljóðfæraleikarar (Mezzoforte m.a.) og góður kórinn. Víkingsrapp og dansarar. Tókst vel og salurinn stóð og dillaði sér. Lofsöng Jesú án þess kannski að gera sér grein fyrir því.

Nú er klukkan 17.05 á sunnudegi. Bjöggi sefur í sófnaum yfir leik Leicester og Blackburn. Held að staðan sé 0-0. Mér er kalt á tánum enda ekki hægt að loka öðrum hverjum glugga í íbúðinni okkar. Góð íbúð samt. Stina Nordenstam föst í fermingargræjunum hans Bjögga. Kemst ekki út enda stundum erfitt opna. Eject takkinn stundum þunnur og ergilegur á sunnudegi.

Hey, mig langar í kaffi held ég.

Helgin.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home