Mitt á milli gaur
Ég um mig frá mér til mín.
Hef stundum velt þessu fyrir mér. Hver ég sé, hvernig ég sé, af hverju ég sé og svo fram-nes-veginn. Er svona eiginlega kominn að niðurstöðu.
Ég er nefnilega held ég svona mitt á milli gaur.
Það þýðir það ég er, en þó ekki alveg. Finn fyrir ýmsu en samt ekki öllu.
Ég er t.d. ekki sérstaklega fyndinn held ég en samt ekki beint leiðinlegur heldur. Ég er ekki endilega gáfaður, en heldur ekki vitlaus, ekki fallegur en heldur ekkert endilega ljótur.
Mér finnst gaman að lifa, er samt ekkert alltaf bara hamingjusamur. Þó ekki þunglyndur heldur. Ég hef það gott en ekki best en langt frá því að ég hafi það verst.
Held ég hafi hæfileika í einhverju. Er t.d. ágætur í fótbolta en samt ekki góður eða frábær. Heldur ekki lélegur. Kann að telja upp í 3000 í huganum en ekki að deila 345 upp í. Er ekki full menntaður en þó ekki illa né lítið menntaður.
Ég fylgist með stjórnmálum en drekk þau ekki í mig, drekk stundum áfengi en ekki mjög oft. Finnst bjór ágætur en ekki frábær.
Ég er allt en samt ekki. Er bæði og en um leið hvorki né.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home