Um dag og veg i lifi Storks

fimmtudagur, nóvember 6

Ég er kannski bara svona leiðinlegur?

Á laugardaginn var skrúðganga á Laugaveginum. Skrúðganga hunda. Hundruðir stoltir eigendur hunda gengu fylktu liði við trommuslátt og fánaborg. Vinkuðu þeim vegfarendum sem ekki góndu forviða á. Ástæðan fyrir göngunni skilst mér... jaa veit ekki alveg. Líklega bara að sýna hundana sína. Leyfa þeim að hittast. Veit ekki, ef ég ætti hund þá myndi ég ekki nenna að mæta á Hlemm með hundinn minn í bandi og arka svo niður bæ í skrúðgöngu, bara að því að ég á hund... og einhver annar líka.

En ég er kannski bara svona leiðinlegur.

Las um daginn viðtal við stelpu sem var nýkjörinn formaður Félags tjaldvagnaeigenda. Skilst að fólkið í þessu félagi tengdist ekkert að öðru leyti en að þau áttu öll tjaldvagna. Veit ekki hvað félagið gerir en reikna með meðlimir þess keyri á eitthvað tjaldsvæði saman, slái upp tjald(vagna)borg og grilli pulsur. Kynnist svo yfir tali um ný tjaldvagnamódel, dráttarkúlur og hráan lauk eða steiktan. Skil þetta ekki alveg. Þetta er eins ef allir sem ættu Hummel galla stofnuðu félag og hittust svo á hverjum laugardagsmorgni og færu í göngutúr um Ægissíðuna. 100 Hummel gallar arkandi. Töluðu jafnvel dönsku. (Hmmm, væri kannski bara svolítið nett?!)

Veit ekki, ég er kannski bara svona leiðinlegur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home