Við hvað ertu hræddur?
Fékk þessa spurningu um daginn. Fór að spá ... við hvað er ég eiginlega hræddur svona almennt?
Ok nokkrir augljósir punktar...
Ef það kæmi núna kyrkislanga skríðandi að mér undir borðinu... Hræddur.
Ef miðaldra Hells Angels bæker, með ZZ top skegg kæmi með exi og segðist þurfa að drepa mig til að komast aftur inn í klíkuna... Hræddur.
Aðrir hlutir eru ekki eins augljósir.
Ég er t.d. hræddur við að gera mistök en um leið hræddur við að gera þau ekki því það þýðir að ég prófaði ekki.
Ég er hræddur við að verða gamall en ég er líka hræddur við að vera ungur og ná því ekki að verða gamall.
Ég er hræddur við óvissuna en ef allt væri ljóst sem væri framundan mér væri það lítið skemmtilegra.
Flókið.
Held ég sé kannski bara helst hræddur við að hræðast ekki. Hræddur við að vera alveg sama. Að hræðast ekkert hlýtur að þýða annað hvort að maður lifi ekki eða vilji ekki lifa.
Ég? Skíthræddur...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home