2004
Rakst á stjörnuspána mína fyrir árið 2004 í gær. Hún hljóðaði einhvern veginn svona...
Steingeitin er með Satúrnus beint á móti sól um þessar mundir (gott, ekki satt?).
Tiltekið samband á hug Steingeitarinnar allan þar sem Satúrnus er jafnframt í sjöunda húsi maka og samvinnu í sólarkorti hennar (segir sig nú sjálft eiginlega).
Afstaða Satúrnusar hefur áhrif á heilsu Steingeitarinnar (erfiður þessi Satúrnus, veit ekki hvað hann er alltaf að bögga mig. Kannski er hann villisvín úr Fellunum).
En...
Júpiter er til allrar hamingju í góðri afstöðu við sól á árinu líka og mun vega upp á móti þrengingum af völdum Satúrnusar (hjúkkit maður).
Og...
Í september mun Steingeitin skilja kjarnann frá hisminu á öllum sviðum.
Þannig að það er greinilega á allt kosið undir sólinni og stjörnunum. Ég á því að eiga gott ár í vændum... hmmm, eða hvað??
Gleðilegt ár og tak for det gamle...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home