Um dag og veg i lifi Storks

þriðjudagur, desember 23

Julehilsen

Var að spá í, í dag að röfla yfir því afhverju í alverden Pósturinn sé kominn inn í Nóatúnsverslanirnar og afhverju sumt má bara ekki vera eins og það er. Ætlaði líka að segja ykkur frá því þegar fór í Nóatún um daginn til að fara á pósthúsið og að röðin á pósthúsið var sama röð og í hraðkassann í Nóatúninu. Bréf og kjúlli í sömu andránni. Ætlaði að segja ykkur að Nóatúnsstarfsmaðurinn virtist vera ansi ringluð enda kannski skiljanlegt. ,,Já Chester Fried kjúklingur, lyftiduft, bréf til Ameríku, 2 mjólkurpottar og 5 A-4 umslög. Þetta gera....,, Skiljanlega ringluð. Ég var það allavega. Spurði konuna hvar umslögin væru. ,,Nú, þau eru þarna hinum megin við þennan vegg, við hliðina á kæliborðinu!” Ætlaði líka að segja ykkur frá því að mér finnst pínu skrítið ef ég er sá eini sem finnst þetta skrítið og að ég var ekki að fíla þetta aaaaalveg í botn.

En..

Það eru að koma jól og þá er maður brattur, keikur og glaður. Ég er það allavega. Óska öllum sem ,,detta inn,, gleðilegra jóla og godt nyt år!”

kveðja, Storkur

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home