Jólin búin og hvað getur maður gert?
Næsti hóll á leiðinni er áramótin. Alltaf sérstök stemning þá. Tóm og hamingja á sömu stundu einhvern veginn. Sjaldan kannski bæði í einu - Tóm hamingja þ.e. Sérstakt.
Ég ætla að taka mótunum með andlitið upp í snjóbylinn að vanda, púa einn vindil með frænda og lesa í teiknin í himninum. Finna lausnir og leiðir fyrir nýtt ár. Stuð.
Dagurinn á eftir býður líklega upp á janúarhret af bestu gerð, hausverk og hamingjuna tóma. Nema maður hafi gert góð plön kvöldið áður og með góðu fólki.
Svo er afmælið stóra á leiðinni. Skrítið að geta sagst eiga afmæli einhvern tímann á næsta ári en um leið eftir aðeins örfáa daga. Er að plana þetta með blendnar tilfinningar. Aðallega góðar samt. Vona að fólk mæti og steikin verði mjúk. Eins og lendingin.
En hvað getur maður gert?
Gleðilega hátíð gott fólk.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home