Ebenezer?
Getur einhver sagt mér hvað er jólalegt við það að láta 5 Coca cola trukka keyra niður Laugaveginn með dúndrandi jólapopplagablöðrur á fullu? (held það hafi jafnvel verið stillt á 11 en ekki 10)
Bueller? ... Anyone?
Kannski er ég bara eins og Ebenezer gamli, alltaf röflandi. Sé ekki glöðu andlitin sem mæna á eftir bílunum niður götuna með opinmynntan munninn eða fatta ekki að Jóli sjálfur situr við stýrið. Kannski.
Kannski fæ ég heimsókn í nótt. Frá einhverjum af draugum Dickens. Fortíðardraugurinn mundi sýna mér jól í Melgerðinu hjá ömmu með gæs, BMX hjóli, gúmmislöngu og síðum nærbuxum frá frænku í Noregi. (hvert ár og Einsi hló alltaf jafn mikið). Framtíðardraugurinn sýnir mér vonandi hvít goslaus jól með sitthvað gott í storkafaðminum. Og gæs auðvitað. Vona þó að ef ég fái heimsókn, verði það draugur úr nútíðinni. Er nefnilega sáttur. Held að þetta verði góð jól, 7, 9, 13.
Ps. Náði einhver þessu með ,,11 en ekki 10,, ?

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home