Rölti niður á tjörn um daginn ...
Stelpa um tvítugt í bleikri úlpu með litla stelpu. Leiddust. Litla stelpan hljóp af stað, ætlaðist til að bleika stelpan elti hana. Hún gerði það auðvitað. Nokkrum metrum aftar gekk kærastinn löngum skrefum með húfu á höfði þrátt fyrir góðviðrið. Litla stelpan horfði hugfangin á gæsirnar sem saddar böðuðu út vængi sína. Bleika stelpan horfði í hugfangin augu litlu stelpunnar en húfustrákurinn horfði á þær báðar með lokuð augun. Þung brúnin óskaði þess að vera heima að horfa á boltann.
Hjón um fertugt í útivistarúlpum (þó ekki í sama lit) gáfu öndum brauð. Engin börn með þeim. Gæsunum sama hver gefur þeim brauðið; hjónunum ekki sama. Gæfu útivistarúlpurnar á stundinni fyrir smærri hendur og meira brauð. Hristu síðustu molana úr Myllupokanum og löbbuðu áfram framhjá Iðnó.
Ungur maður í Securitas úlpu loftaði smóknum í takt við brauðgjöfina. Annað hvort að koma eða fara á vakt.
29 ára gamall maður í grænni úlpu sat á bekk og hugsaði hvað í alverden hann væri að gera þarna að huxa um þetta fólk þegar hann gat verið allt annars staðar að gera allt aðra hluti með allt allt öðru fólki.
Ahhh well... hvað getur maður gert.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home