Tognun í nára
Fór í líkamsræktarstöð í gær. Hef ekki verið duglegur að fara undanfarið en skellti mér sem sagt í gær (season framundan), hljóp fyrst úti og óð svo í tækin. Fór beint í bekkpressuna og tognaði auðvitað strax í náranum. Settist því og hvíldi mig í smástund og virti fyrir mér fólkið sem var að æfa.
Tók eftir einu. Enginn mælti orð við iðjuna, störðu aðeins stíft inn í vegginn á móti. Í gegnum næsta mann. Enginn virtist hafa sérstaklega gaman af því sem hann var að gera og ég gerði mér grein fyrir því að æfa á svona stöðum, að rækta líkamann er líklega sjaldnast áhugamál eins og að fara í jóga, stunda útsaum eða skjóta leirdúfur. Flestir vilja vera vel á sig komnir, vera fit og það allt en fáum finnst held ég gaman að verða það. Allavega með þessu móti.
Mér fannst það allavega liggja yfir vötnum að flestir væru þarna af skyldurækni eða öðrum mótívum. Vegna þess að þjálfarinn var búinn að setja upp plan, konan ósátt við björgunarhringa eða hópþrýstingur borið einhvern ofurliði.
Nema.
Það var einn gaur þarna sem var roooosa hress. Einkaþjálfari. Sá maður var í essinu sínu. Eins og krækibær í hellíti eiginlega. Dillaði sér á milli viðfangsefnanna, blikkaði og söng með jólalögunum í útvarpinu. Tók síðan upp létt lóð og þóttist eiga í vandræðum með að lyfta þeim. Blikkaði viðfangsefnið aftur. Mjög hress gutti. Held hann hafi jafnvel skynjað að eitthvað þyrfti að gera.
Veit ekki...
Ég held að ég sé jafnvel líka með tognun á áhugasviðinu.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home