Um dag og veg i lifi Storks

þriðjudagur, desember 9

Ljóð í matvöruverslun

Fór í Nóatún í gær eftir vinnu. Þegar ég gekk inn sá ég útundan mér manneskju standa aðeins innar eða við innri inngang verslunarinnar. Ahhh einhver að selja eitthvað hugsaði ég. Hafði rétt fyrir mér en þó var sölumaðurinn ekki af þeirri tegund sem ég hafði ímyndað mér. Ég bjóst við því að blindur maður byði mér nælu til sölu eða ógæfudrengur byði mér penna fyrir nýtt og betra líf. Var alveg að fá sting í magann því ég átti ekki pening í lausu og finnst alltaf leiðinlegt að segja hmmm nei nei, ég á penna!

Engin ógæfa mætti mér þó við innganginn þann innri því þar stóð rithöfundurinn Elísabet Jökulsdóttir með bleika bók í hendinni og spurði mig í óspurðum, hvort ég vildi kaupa nýju ljóðabókina hennar, Vængjadyr. Ha? Nei það held ég ekki, held ég að ég hafi sagt. Ekki gott svar kannski en ég hafði séð draug í mannheimum, kommúnista í frjálshyggjunni, sykur í Cheeriosinu. Rithöfund í matvörubúð. Ég vissi hreinlega ekki hvernig ég átti að taka þessu. Var verið að taka mynd? Mig á taugum?

Strunsaði í átt að kjúklingaborðinu en þar var fátt um fína drætti og snéri því við í skrefinu og út aftur. Á leiðinni út gekk ég framhjá Elísabetu á ný. Hún var þá að tala við einhverja konu en leit þó upp, brosti til mín og spurði hvort ég væri búinn að skipta um skoðun? Nei, það held ég ekki svaraði ég. Brosti á móti auðvitað. Enginn dóni.

Sannleikurinn var hins vegar sá að ég hafði lesið um þessa bók Elísabetar í einhverjum blöðunum og leist svo sem alveg ágætlega á. Allavega hafði ég hugsað mér að glugga í hana á Súfistanum. Kannski gefa hana í jólagjöf. En ljóð í Nóatúni gat ég bara ekki höndlað í gær. Með kjúkling í annarri og bleik ljóð í hinni? Nei held ekki. Veit samt ekki alveg af hverju ekki. Verslanir eru byrjaðar að selja bækur í búðunum, af hverju ættu höfundarnir ekki líka að kíkja við og kynda kúnnann aðeins? Gefa jafnvel smakk?

En klikkaði á þessu í gær og hélt heim kjúklinga- og orðlaus. Hefði getað mettað mig á sál og líkama í Nóatúni í gær en afþakkaði. Keyrði heim með húfuna niður í augu og gaul í maga.

En næst Elísabet... gæti ég verið búinn að skipta um. Skoðun og smekk.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home